Saturday, April 23, 2011

Æfingaferð í Þorlákshöfn

  • Helgina 13.-15. maí munum við ásamt 3. flokki kvenna fara í æfingaferð til Þorlákshafnar. Þar fáum við afnot af góðri íþróttaaðstöðu; þremur grasvöllum, gervigrasvelli, íþróttahúsi og svo eru sundlaug og pottar.
  • Við gistum í skólanum og svo fáum við kvöldmat á föstudegi, morgunmat, hádegismat og kvöldmat á laugardegi og svo morgunmat á sunnudegi. Okkur er sagt að maturinn sé bæði hollur og góður.
  • Það er Ölfussport sem er að bjóða íþróttafélögum að koma í æfingaferðir og nýta sér þessa góðu aðstöðu í Þorlákshöfn. Hægt er að sjá myndir og upplýsingar á olfussport.is
Ferðin kostar 9.000-10.000 krónur á mann. Við höfum hugsað okkur að krakkarnir sameinist í bíla þ.a. foreldrar skutli og sæki, þá er náttúrulega best að foreldrar skipti með sér verkum þ.a. sami aðilinn sé ekki bæði að sækja og skutla.

Ferðin er hugsuð til að stilla saman strengi innan vallar sem utan. Það er ljóst að við munum sennilega æfa einu sinni á föstudegi, 1-2 á laugardegi og einu sinni á sunnudegi. Svo munum við kappkosta að gera eitthvað skemmtilegt þar fyrir utan.

3 comments:

  1. komin smá spenna í hópinn núna það er á hreinu:)


    -Bond

    ReplyDelete
  2. en má vera bara leika sér á grasinu þegar að maður vill?

    ReplyDelete
  3. Það mákoma undir nafni líka - Emil f

    ReplyDelete