Við hlaupum úti stuttan upphitunarhring og svo verða æfingarnar stöðvaþjálfun þar sem áherslan er lögð á að vinna með eigin líkamsþyngd og teygja svo vel í lokin. Athugið að þið megið ekki vera í útiskóm inni í sal.
Rétt eins og í fyrra fáum við sérstakt tilboð. Við fáum 5 mánaða kort á 9.900 krónur. Hægt er að skipta greiðslum í 2 eða 3 hluta með euro/visa. Þið greiðið kortið í móttökunni í Hress á Dalshrauni, þau eru með nafnalista og láta ykkur fá kort.
Kortið gildir í Hress á Dalshrauni og á Ásvöllum og einnig í sundlaugina á Völlunum þ.a. þetta gæti nýst ykkur einnig utan æfingatíma.
Þeir sem eru að æfa handbolta geta fengið frí á þessum æfingum og tekið handboltaæfingarnar í staðinn.
Fyrsta æfingin í Hress er núna á fimmtudaginn kl. 19:00 - 20:30.
foreldrar mínir eru í útlöndum svo að ég get ekki borgað kortið fyrr en eftir helgi.
ReplyDeleteHvað á ég þá að gera ?
-Guðmundur Orri
Komdu bara, þú borgar bara eftir helgi.
ReplyDeletekemst ekki á æfinguna á fimmtudaginn 21 október seinasta æfing fyrir leik í handboltanum
ReplyDeleteTómas Orri
kem ekki á æfinguna í hress (fimmtudaginn) handboltaæfing
ReplyDelete-Ellert