Mæting kl. 16:30 við smábátahöfnina þar sem siglingaklúbburinn Þytur hefur aðstöðu. Þar ætlum við að míga í saltan sjó. Gott er að hafa föt til skiptanna og handklæði ef þið skilduð detta útbyrðis en það eru sturtur þarna á staðnum og svo er Suðurbæjarlaugin rétt hjá.
Eftir þetta ætlum við upp í Kapla og taka létt hraðmót í Risanum. Þið getið fengið klefa í Kaplakrika.
Að því loknu ætlum við að grilla og gera eitthvað skemmtilegt. Við sjáum um gos og hamborgara en þið megið að sjálfsögðu koma með eitthvað aukalega með ykkur s.s. meira gos og nammi og e-hv. Þetta allt kostar 500 kr. Þeir sem eiga inni frá te og rist frá því í sumar á móti Stjörnunni þurfa ekki að borga.
Vá hvað ég er að fýla þetta!....þetta kallar maður good shit!
ReplyDeletekv Ferro
Ég kemst ekki :( , er að fara í leikhús með fjölsk. og mamma keypti miðann fyrir svona mánuði :S
ReplyDeleteKv.Gulli
Hvenar byrjar hraðmótið í risanum og þarf nefninlega að passa litlu systur mína meðan þið verðið á smábátahöfn
ReplyDeleteSiggi th fyrir ofan
ReplyDeleteSvona sirka 18:30.
ReplyDeleteKv. Orri