Wednesday, October 17, 2012

Markmannsæfingar að hefjast

Markmannsæfingar hefjast í þessari viku. Úlfar Daníelsson sér um þær eins og áður og verða þær á fimmtudögum í Risanum frá 16.00-17.00. 

Næsta fimmtudag, 18. okt., byrjar yngri hópurinn, þ.e. markmenn í 5., 6. og 7. flokki karla og kvenna og verða svo annan hvern fimmtudag í kjölfarið. Markmenn í 3. og 4. flokki karla og kvenna byrja 25. október á þessum sama tíma. 

Fram að jólum verða því æfingar hjá markmönnum í 3. flokki á eftirtöldum dögum: 25. október, 8. nóvember, 22. nóvember. 6.desember og 20. desember. 

Þið eruð að vísu á æfingum hjá Silju Úlfarsdóttur frá 15:30 - 16:30 á fimmtudögum. Þið náið fullri æfingu hjá Silju aðra hverja viku en gætuð þá tekið hálfa æfingu 15:30 - 16:00 hina vikuna og komið bara heitir á markmannsæfinguna.

No comments:

Post a Comment