Wednesday, October 17, 2012

Æfingar hjá U-16 og U-17 um helgina

Um helgina eru æfingar hjá U-17 og U-16. Við erum með einn leikmann í úrtakinu hjá U-17 Pétur Jónsson en fimm í U-16: Adam Pálsson, Birgi Þór Þorsteinsson, Gunnar Óla Björgvinsson, Hörð Gunnarsson og Viktor Benediktsson.

Þetta eru alls ekki endanlegir æfingahópar, fleiri leikmenn verða skoðaðir í vetur. Það er ánægjulegt að við séum með marga leikmenn í U-16 en við hefðum viljað sjá fleiri í U-17. Við viljum alltaf sjá sem flesta FH-inga í þessum æfingahópum og við teljum að það séu fleiri leikmenn í okkar röðum sem eiga erindi á þessar æfingar. Svo er það alltaf undir leikmönnunum sjálfum komið að æfa vel og standa sig vel og þá vonandi fá þeir tækifæri.

No comments:

Post a Comment