Wednesday, March 2, 2011

Dómaranámskeið

Miðvikudaginn 2. mars kl. 19.00 – 21.30 í Kaplakrika.

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við FH í Kaplakrika. Gefur námskeiðið réttindi til þess að dæma sem "unglingadómari", en það er dómgæsla og aðstoðardómgæsla í yngri flokkum í fótbolta. Talsverð fríðindi fylgja því að hafa þessi réttindi en handahafar dómaraskírteinis fá frítt inná alla leiki í Íslandsmóti í öllum deildum. Foreldrar eru einnig sérstaklega boðnir velkomnir.

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar. Námskeiðið er ókeypis.

Athugið: Skyldumæting hjá knattspyrnuiðkendum í 3. flokki en Þeir sem tóku unglingadómaranámskeið í fyrra og stóðust það, þurfa ekki að taka það aftur.

8 comments:

  1. Hei þeir sem eru í afreksskólanum eiga þeir að fara í hann ef þeir eru lika að fara að keppa sama dag ?

    ReplyDelete
  2. Nei þá fá þeir frí í Afreksskólanum. Látið Lauga vita.

    ReplyDelete
  3. Hvenær koma liðin ?

    ReplyDelete
  4. er algjör skilda að mæta þó maður sé að fara á æfingu sama tima???

    ReplyDelete
  5. á maður að mæta ef maður dæmti engan leik í fyrra ???

    ReplyDelete
  6. Já það eiga allir að taka þetta dómarapróf. Ef þið dæmduð engan leik í fyrra en náðuð prófinu þá fáið þið tækifæri á að vinna það upp með því að dæma leiki í Faxaflóamótunum.

    Orri

    ReplyDelete
  7. Orri komst ekki í kvöld, Fékk eitthverja pest og leiðindi.

    kv. Benni A

    ReplyDelete
  8. verður annað námskeið fyrir þá sem komust ekki í dag?

    ReplyDelete