Þessi hugmynd að hafa Eskimóabolta fæddist hjá strákunum í Lækjarskóla í morgun og mér fannst hún svo frábær þarna í logninu og púðursnjónum. Ég sá fyrir mér snjóinn þeytast undir stjörnubjörtum himni, hávær köll, hlátrasköll og heitt kakó í brúsa á eftir. Jafnvel eggjabrauð.
En skjótt skipast veður í lofti og himininn tók að grána og vind að hreyfa. Í kvöld var vart stætt en ég var ánægður hvað það mættu margir til í slaginn. Þetta veit á gott. Eins og ég sagði þá er sennilega betra að vera spila fótbolta í vondu veðri en að vera að berja ís af togara á Halamiðum. En þið eruð efni í togarajaxla.
Eftir 40 mínútur í Eskimóaboltanum þá fluttum við okkur inn í Risann og tókum Brazza með stelpunum í 3. flokki sem mynduðu eitt lið Bayern Munchen en fyrirliði þeirra var Viktoría van Bommel. Þemað var einmitt þýska deildin. Hoffenheim og Schalke 04 náðu sér ekki á strik en Werder Bremen gerði síðbúna atlögu að titlinum. Borussia Dortmund unnu hvern leikinn á fætur öðrum á Westfallen stadium en 15 sigurinn sem hefði tryggt þeim titilinn lét á sér standa og virtist sem þeir væru sprungnir á limminu. En þó fór það svo að lokum að þeir tryggðu sér góðan sigur.
Þetta skildi þó ekki vera fyrirboði um baráttuna í þýsku Bundesligunni þar sem einmitt Dortmund hefur forystu? Það skyldi þó ekki vera að Brazzabolti í 3. flokki gæfi betri vísbendingu en kolkrabbinn þýski og tíkin Pamela (hundur)?
Á fimmtudaginn er ekkert útihlaup fyrir Hress því þá er spáð kolvitlausu veðri og nú ætla ég að hafa vaðið fyrir neðan mig. Sá sem kemur fyrstur með skýringu á þessu orðtaki fær ís á næsta skemmtikvöldi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Að hafa vaðið fyrir neðan sig.
ReplyDeleteÞað kemur frá því í gamla daga , þegar ferðast var á hestum yfir vað (á), þá var farið með hestana hærra í vaðið því þeir gætu hrokist undan straumnum og þá er lægra til botns fyrir neðan þá eða : að hafa vaðið fyri neðan sig
-Gulli
að vera varkár og passa sig
ReplyDelete-Siggi Th.
Að vera búinn að undirbúa málin vel, vera skipulagður, fara örugga leið.
ReplyDeleteFara varlega
ReplyDelete-Atli
Þetta er allt saman rétt hjá ykkur en Gulli var fyrstur með skýringuna og hlýtur því ís á næsta skemmtikvöldi.
ReplyDeleteKv. Ocho