Sunday, March 7, 2010

Dómaraprófið á morgun

Á morgun kl. 17:30 í Hvaleyrarskóla er svo dómaraprófið. Ef þið náið því þá útskrifist þið sem unglingadómarar. Þeir sem misstu af námskeiðin í síðustu viku geta þrátt fyrir það þreytt prófið. Ég vona að þið hafið kynnt ykkur vel knattspyrnulögin og reglugerðir á heimasíðu KSÍ.

Leiðbeiningar:

Öll námsgögn eru að finna á heimasíðu KSÍ, fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum til að finna þau:

1) á forsíðu heimasíðunnar veldu "Fræðsla".
2) Veldu svo "Dómaramál".
3) Veldu svo "Kennsluefni á unglingadómaranámskeiðum". Lesa svo mjög vel Glærur, Knattspyrnulögin, túlkun laganna og reglugerð um 7-mannabolta.

2 comments:

  1. ég kemst ekki á æfingu út af því ég er meiddur í bakinu
    Bjarki

    ReplyDelete
  2. Kemst ekki á æfingu.
    Kv.Brynjar Geir

    ReplyDelete